| Jólafriður |
|
|
|
| Skrifað af Kári Þormar | |
| sunnudagur, 20 desember 2009 | |
|
Jólatónleikarnir Jólafriður verða haldnir sunnudaginn 20. desember næstkomandi í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði og hefjast þeir kl. 20. Þeta er áttunda árið í röð sem tónleikarnir eru haldnir en á þeim er flutt róleg og ljúf tónlist við kertaljós og reynt að skapa notalega stemmningu. Tónlistarstjóri er Daníel Arason. Tónleikarnir í ár verða með glæsilegra móti, til að mynda mun sex manna strengjasveit leika með ásamt þriggja manna blásarasveit. Þá verður hrynsveitin á sínum stað, gítar, bassi, trommur og píanó ásamt um það bil 15 manna kór. Tónlistarmennirnir sem fram koma eru allir búsettir á Austurlandi eða ættaðir þaðan utan þrjá fiðluleikara og sellóleikara sem koma að norðan. Aðgangseyrir er 2.000 kr., ókeypis fyrir grunnskólabörn |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|