| Aðventutónleikar 2009 |
|
|
|
| Skrifað af Kári Þormar | |
| miðvikudagur, 25 nóvember 2009 | |
|
Á Austurlandi fagna menn aðventunni með tónleikum þar sem Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Austfirðingar leggja saman krafta sína. Efnisskráin er fjölbreytt og mun svo sannarslega koma öllum í jólaskap. Flutt verður jólaævintýrið Snjókarlinn eftir Howard Blake, Missa brevis K 220 eftir W.A.Mozart, jólatónlist eftir Leroy Andersson og þættir úr Hnotubrjótnum eftir P.I.Tchaikovsky. Ókeypis aðgangur fyrir grunnskólabörn. Þátttakendur í tónleikunum auk Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands eru kórar á Austurlandi sem sameinast í 70 manna blöndaðan kór undir nafninu Snælandskórinn. Barnakórar frá Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði syngja og einsöngvarar á tónleikunum eru Eydís Úlfarsdóttir sópran, Ragnhildur Rós Indriðadóttir alt, Þorbjörn Rúnarsson tenór og Valdimar Másson bassi. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.
W.A. Mozart samdi mikið af kirkjutónlist, messur, mótettur, og kvöldsöngva. Missa Brevis Kv. 220 eða sem oft er nefnd Spörfuglsmessan er ein sú þekktasta af þessum verkum og er samin fyrir kór, einsöngvara og hljómsveit. Eitt af þekktustu verkum Tchaikovsky er ballettinn Hnotubrjóturinn. Tónlistin sem er listilega skrifuð er samin við jólaævintýri þar sem segir frá hnotubrjót sem er ungur piltur í álögum og Klöru sem fær hnotubrjótinn að gjöf. En eins og í öllum góðum ævintýrum þá endar sagan vel og drengurinn leysist úr álögunum. Eftir Leroy Anderson verður flutt Sleigh ride og Christmas Festival sem er syrpa af þekktum jólalögum í útsetningu Andersons. Við heyrum hljóma þekkt jólalög og Snælandskórinn syngur með. Sem fyrr segir þá eru tónleikarnir í Kirkju- og menningarmiðstöðinni í Fjarðabyggð sunnudaginn 29. nóvember kl. 16:00, aðventutónleikar sem ættu svo sannarlega að koma öllum í jólaskap.
|
|
| Síðast uppfært ( föstudagur, 27 nóvember 2009 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|