• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Stillingar
Þú ert hér:
Ljósmyndasýning Vilbergs Guðnasonar PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Kári Þormar   
fimmtudagur, 08 október 2009

4.- 17.október
Ljósmyndasýning – Vilberg Guðnason
Vilberg Guðnason - ljósmyndari

 

vilberg_forsa.jpg
Sýningin skiptist í tvennt. Annars vegar eru mikill fjöldi margvíslegra mynda fengnar að láni hjá fjölmörgum sem eiga verk eftir Vilberg en einnig eru myndir sem unnar eru beint af filmum frá Vilbergi og eru sérstaklega prentaðar og uppsettar í tilefni sýningarinnar.Þær myndir verða til sölu að sýningu lokinni.
Vilberg Guðnason, atvinnuljósmyndari, vann að ljósmyndun frá því um 1940 og til ársins 2000. Hann er Eskfirðingur og hefur unnið að iðn sinni í heimabænum allan sinn tíma, ef frá eru taldar þær stundir sem hann dvaldist í Reykjavík við nám. Þessi sýning er mjög áhugaverð því hér fléttast saman menningarverðmæti, sagan, heimildir og nánast horfin myndtækni s.s. málun og redúsering.
Sýningin er opin virka daga frá kl.17-19 og 11 – 15 á laugardögum og er hún í samstarfi við Ljósmyndasafn Eskifjarðar.

 

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 08 október 2009 )
 
< Fyrri   Næsti >