|
Skrifað af Kári Þormar
|
|
fimmtudagur, 23 október 2008 |
|
Sunnudaginn 26. október kl:17.00
Austfirskt, já takk .
Með frönskum hreim
Hildur Þórðardóttir þverflauta og Ingunn Hildur Hauksdóttir píanó
Tónleikarnir “Austfirskt, já takk” er auðvitað vísun í íslenskt markaðsátak og beinir sjónum að þeim gæðum sem héðan koma, og því tilvalið að benda á þann sköpunarkraft sem kemur úr Austfirsku samfélagi. “Austfirskt, já takk” eru tónleikar þar sem fenginn er tónlistarmaður, ættaður af Austfjörðumog er ætlað að vekja athygli á þeim tónlistarauði er héðan kemur
Á fyrstu tónleikunum koma fram Hildur Þórðardóttir þverflautuleikari en og Ingunn Hildur Hauksdóttir Píanóleikari. Hildur Þórðardóttir hóf þverflautunám í Neskaupstað hjá Haraldi Guðmundssyni og syni hans Hlöðver Smára Haraldssyni. Eftir það lá leið hennar í Tónlistarskólann í Reykjavík til Guðrúnar Birgisdóttur og Martial Nardeau og lauk þaðan einleikaraprófi árið 1991. Þá fór hún til Frakklands og lærði hjá Jean-Michel Varache í Conservatoire de Versaille og síðan í Ecole Nationale de Meudon hjá Francois Veilhan. Árið 2000 kom Hildur heim til Íslands og hefur starfað sem kennari við Tónlistarskólana í Grindavík og Reykjanesbæ, en starfar nú við Tónlistarskólann í Hafnarfirði.
Ingunn Hildur Hauksdóttir stundaði nám hjá Kristínu Ólafsdóttur í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og síðar hjá Jónasi Ingimundarsyni í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Þaðan lauk hún píanókennara- og einleikaraprófi vorið 1993. Hún hefur sótt námskeið m.a. hjá György Sebök, Dalton Baldwin og Nelitu True. Árin 2002-2004 sótti hún einkatíma hjá Roger Vignoles. Ingunn fæst reglulega við kammertónlist samhliða starfi sínu sem kennari og meðleikari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Tónlistarskóla Kópavogs og Listaháskóla Íslands.
Á efnisskánni er seiðandi frönsk tónlist eftir
Gabriel Pierné, Benjamin Godard, Lili Boulanger og
Gabriel Fauré
Tónleikarnir hefjast kl:17.00
Aðganseyrir er 1500/1000
|
|
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 29 október 2008 )
|