• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Stillingar
Þú ert hér:
Tónleikar til heiðurs Rögnvaldi Sigurjónssyni PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Kári Þormar   
þriðjudagur, 14 október 2008

rgnvaldur2.jpgRögnvaldur Sigurjónsson
Hátíðartónleikar og dagskrá til minningar um Rögnvald Sigurjónsson

Sunnudaginn 19.október kl.16.00 

Á þessum tímamótum hefur Kirkju- og menningarmiðstöðin í Fjarðabyggð ákveðið að heiðra minningu eins okkar ástsælasta og virtasta píanóleikara Rögnvaldar Sigurjónssonar, og með því að efna til dagskrár í tali og tónum. Rögnvaldur hefði orðið 90 ára 15. október n.k.
Tónleikarnir verða haldnir í Kirkju- og  menningarmiðstöðinni Fjarðabyggð sem staðsett er á Eskirði, en þar er Rögnvaldur fæddur og lifði þar fyrstu ár ævi sinnar. Hann var sonur Sigurjóns Markússonar sýslumanns.á Eskifirði, en þá má geta þess í framhjáhlaupi að Gísli Magnússon píanóleikari er  fæddur á Eskifirði árið 1929, einnig sonur sýslmannsins á staðnum.

Rögnvaldur fæddur er fæddur á Eskifirði og lifði þar fyrstu ár ævi sinnar. Hann var sonur Sigurjóns Markússonar sýslumanns.á Eskifirði, en þá má geta þess í framhjáhlaupi að Gísli Magnússon píanóleikari er  fæddur á Eskifirði árið 1929, einnig sonur sýslmannsins á staðnum.
Rögnvaldur ólst upp í Reykjavík. Hann var valinn í sundknattleikslið Íslands sem keppti á Ólympíuleikunum í Berlín 1936. Hann lauk prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1937 og nam eftir það píanóleik hjá M. Ciampi í París 1937-1939 og M. Horzovsky og Sascha Gorodnitzki í New York 1942-1945. Rögnvaldur kenndi við Tónlistarskólann í Reykjavík frá 1945-1986 en hann var yfirkennari við framhaldsdeild í píanóleik frá árinu 1959. Hann kenndi við Nýja tónlistarskólann frá 1986 og til dauðadags. Rögnvaldur hélt fjölda einleikstónleika, kom fram með hljómsveitum og í útvarpi og sjónvarpi bæði heima og erlendis, m.a. á Norðurlöndunum, Ameríku og Vestur- og Austur- Evrópu. Hann gerði vinsæla þáttaröð, Túlkun í tónlist, fyrir útvarp á árunum 1985-1988. Hann gaf út tækniæfingar fyrir píanóleik. Eftir Rögnvald liggja einnig tvær minningabækur, Spilað og spaugað og Með lífið í lúkunum, báðar ritaðar af Guðrúnu Egilson. Hann gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir íslenska tónlistarmenn, var m.a. formaður FÍT frá 1977 til 1983.
Hann var einnig forseti Einleikarasambands Norðurlanda 1979 til 1981. Rögnvaldur var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Hann var heiðursborgari Winnipegborgar og heiðursfélagi FÍT.
Á þessum tónleikum verður sjálfsögðu  píanótónlist í hávegum höfð og flytjendur verða fyrrum nemendur og samstarfsmenn Rögnvaldar. Það verða þeir Halldór Haraldsson, Ólafur Elíasson og Þorsteinn Gauti Sigurðsson.  Þá verða sérstakir gestir, Karlakórinn Glaður en faðir Rögnvaldar var einn af stofnendum karlakórsins. Ásamt þeim ræðir Geir Rögnvaldsson, sonur Rögnvaldar, um líf hans og rifjar upp merkileg atvik úr lífi. Þá flytur bæjarstýra Fjarðarbyggðar ávarp og væntanlega hafa flytjendur einnig eitthvað um hann að segja.

rggi1.jpg

Með þessum tónleikum viljum við hér í Fjarðabyggð heiðra minningu mikils listamanns sem hér er fæddur, og sem hann gat í hvívetna, og að vissu leyti þá að endurgjalda þá virðingu er hann sýndi Eskfirðingum.  Í öðru lagi viljum við einnig minna Austfirðinga alla á þessa menningarsögulegu staðreynd um það hvað héðan úr þessum jarðvegi  hefur sprottið.  Í þriðja lagi viljum við vekja athygli íslendinga á því mikla menningarstarfi sem hér fer fram, í þessum góða tónleikahúsi og aðstöðu sem hér er, og að tengja Austfirskt menningarlíf frekar við menningarsögu landsins.

Tónleikarnir verða á sunnudaginn 19. október og hefjast kl:16.00
Aðgangur er ókeypis

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 29 október 2008 )
 
< Fyrri