• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Stillingar
Þú ert hér: Heim arrow Dagskrá
Dagskrá Prenta Rafpóstur

MARSs

Heimur Sígildrar tónlistar

Drottning hljóðfæranna

barduka.jpg

APRÍL

 ƒƒƒ - forréttir fyrir flygla

Hljómeyki

Síðasta lag fyrir svæðisútvarp

 

MAÍ

Kammerkór Austurlands

Djass 

Listahátíð

 

 


MARS

Heimur Sígildrar tónlistar

13.-15. mars
Heimur sígildrar tónlistar
Námskeið og tónleikar með Ólafi Elíassyni  píanóleikara en hann leiðir okkur á nýstárlegan og spennandi hátt um lendur klassískrar tónlistar. Námskeið þessi hafa hlotið mikla athygli og notið mikilla vinsælda.

Drottning hljóðfæranna

19.mars kl 20.00
Kári Þormar organisti Eskifjarðarkirkju
Orgeltónleikar til styrktar orgelsjóði Eskifjarðarkirkju
Kári Þormar organisti Eskifjarðarkirkju leiðir áheyrendur um ríkidæmi Drottningar hljóðfæranna. Hann leikur þekkt orgelverk eftir C.Franck, Pachelbel, Jón Nordal og J.S.Bach m.a. hina þekktu Tokkötu og fúgu í d-moll.
Aðgangseyrir rennur óskiptur í orgelsjóð Eskifjarðakirkju.

 


APRÍL

ƒƒƒ - forréttir fyrir flygla

1.apríl  kl.20.00
Píanótónleikar

Kári Þormar. Tónleikar, þar sem leikin eru þekkt, aðgengileg klassísk, impressionísk og  samtímaverk.  Áhersla lögð á að verkin séu í styttri  og kantinum, ekki of  kröfuhörð áheyrnar, geti höfðað til áheyrenda og opni frekar dyrnar að heimi píanótónlistar. Þá verða áheyrendur fræddir um verkin í léttu spjalli, um atburði í lífi tónskáldanna , eitthvað um stíltegundir tónverkanna og reynt að setja verkin í tengsl við samtíðina.  Þá verður myndum af tónskáldunum varpað á vegg, stöðum tengdum tilveru þeirra og tíðaranda..

Hljómeyki

13.apríl kl.15.30
Kórtónleikar
Hljómeyki, hefur löngum verið talinn einn af bestu og reyndustu kammerkórum  á Íslandi.
Hljómeyki var stofnað árið 1974, og er því einn elsti starfandi kammerkór á landinu Kórinn hefur ætíð lagt megináherslu á flutning nýrrar íslenskrar tónlistar og frumflutt mikið af íslenskri kórtónlist.

Stjórnandi: Magnús Ragnarsson

Síðasta lag fyrir svæðisútvarp

20. apríl kl 16.00
Tónleikar þar sem Austfirðingar setja saman dagskrán með því að senda inn óskir um lög. Flytjendur eru Sigrún Hjálmtýsdóttir og Jóhann Friðgeir Valdimarsson. Meðleikari er Kári Þormar.
Tilgangur tónleikana er gefa tónleikagestum tækifæri á að hafa áhrif á tónleikana með því að hringja, skrifa eða senda tölvupóst á Kirkju og menningarmiðstöðina í Fjarðabyggð. Þar með er Austfirðingum gefinn  möguleiki að taka meiri þátt í tónlistarlífinu með beinum hætti, og glæði tónlistaráhuga almennt.    Lagaval miðast við að  nokkru leyti við íslensk, erlend einsöngslög  og alþýðulög .

 
 

MAÍ

Kammerkór Austurlands

1. maí
Kammerkór Austurlands

Djass

Vantar dagsetningu
Kári Árnason og hljómsveit
Kvartettinum eru þeir Kári Árnason trommur, Sigurður Flosason alto sax, Agnar Már Magnússon Hammond orgel og Ómar Guðjónsson, gítar. Það er óhætt að segja að þarna séu á ferð úrval íslenskra jassleikara.

Listahátíð

23.maí
Tónleikar á vegum Listahátíðar í Reykjavík