|
Ágrip af sögu menningarmiðstöðvarinnar |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
mánudagur, 18 febrúar 2008 |
|
Menningarhlutverk Eskifjarðarkirkju var endanlega staðfest með samstarfssamningi ríkis og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál á Austurlandi. Var þessi samningur samþykktur af viðkomandi aðilum á Seyðisfirði þann 14. maí árið 2001. Samkvæmt áðurnefndum samningi verða menningarmiðstöðvarnar á Austurlandi fjórar þ.e. Skaftfell á Seyðisfirði, menningarmiðstöð á Austur-Héraði, menningarmiðstöð á Hornafirði og síðast en ekki síst Kirkju- og menningarmiðstöðin á Eskifirði.
Segja má að kirkjan sé móðir listarinnar. Innan hennar hefur öllum listgreinum verið haldið í heiðri og í skjóli hennar náð að rísa hvað hæst. Út frá guðfræðilegu sjónarmiði, eru listirnar gjafir skaparans og listarmaðurinn með list sinni lofar hann og heiðrar.
Þessu heldur Kirkju- og menningarmiðstöðin á lofti með því að skapa listgreinum verðugt rými. Í því felst eindregin hvatning til fólks að laða það besta fram í sínu fari. Þannig miðað að því að auðga og fegra mannlíf allt.
Kirkju- og menningarmiðstöðin er sérlega hentug fyrir tónleika af flestum toga. Hljómburður er þar einstakur og hönnun byggingar miðaði öll að því að skapa sjón- og hljóðræna nánd milli flytjenda og njótenda. Húsið er mjög sveigjanlegt og aðbúnaður allur í sérflokki og fer vel um fólk.
Þá er húsið einnig mjög hentugt til sýningahalds, hvers kyns ráðstefna og funda.
Á árinu 2002 voru tuttugu menningarviðburðir í Kirkju- og menningarmiðstöðinni og sóttu þá tæp tvöþúsund og fimm hundruð manns.
|
|
Síðast uppfært ( mánudagur, 18 febrúar 2008 )
|